Aflraunir
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 31. ágúst 2010 12:30

Sterkasti Maður Heims 2010 = 15 dagar í átökin !


Þá er komið að keppninni um hver sé Sterkasti Maður Heims og að vanda er Íslendingur í þessum hópi; Stefán Sölvi sem er í fyrsta riðli ásamt, Mark Felix (Bretland) , Brian Shaw (Bandaríkjunum var í 3.sæti í fyrra), Sergey Romanchuk (Úkraínu), Ettiene Smit (Suður-Afríku) og Stoyan Todorchev (Búlgaríu). Keppnin er að þessu sinni haldin Sun-City í Suður-Afríku en það var einmitt þar sem Magnús Ver Magnússon sigraði keppnina í annað sinn árið 1994.

Smellið á nánar til að sjá keppendur og greinar

Nánar...
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 29. júní 2010 16:41

Austfjarðartröllið 12.-14.ágúst


Ljósm. Sólveig Bjarnar
 

Skráning fer fram magnusver63(hjá)hotmail.com eða í síma 6630001

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 29. júní 2010 16:47
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 09. ágúst 2010 12:35

UPPFÆRÐUR KEPPENDALISTI
Upplýsingar um Austfjarðartröllið 2010


Keppendur 2009: Hallgrímur, Jón Þór, Úlfur, Valgeir, Hafþór, Jónas
Árni Freyr, Páll og Sturla
Ljósm. Sólveig Bjarnar

Þá fer lokahóf aflraunasumarsins að hefjast ! Austfjarðartröllið 2010 hefst núna á fimmtudaginn kl 11.30 og fer fyrsta grein fram á Hornafirði. Í ár verður keppt í 12 greinum á þrem dögum og eru nú þegar 10 keppendur búnir að skrá sig til leiks ! Hægt er að skrá sig á mótið hjá Magga Ver í síma 663-0001. Smellið á nánar til að sjá ítarlega dagskrá og upplýsingar um keppendur. Ath að þyngd keppenda gæti verið búin að breytast eitthvað en feitletruðu eru nýuppfærð.

Síðast uppfært: Föstudagur, 13. ágúst 2010 11:20
Nánar...
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 04. ágúst 2010 12:01

UPPFÆRT Uppsveitarvíkingurinn = OK Búðarmótið

 
Keppendurnir í fyrra
Ljósm. Rakel Lilja

Þá er komið að mótinu sem áður hét Uppsveitarvíkingurinn en nú OK búðarmótið þar sem það verður ferðatölva í vinning. Keppendur sem hafa staðfest komu sínar eru Hafþór Júlíus, Úlfur Orri, Árni Freyr Stefánsson, Ari Gunnars og Georg Ögmunds. Þeir sem vilja skrá sig á mótið geta haft samband við Hjalta í síma 897-8626. Mótið hefst eins og venjan er á dekkjaveltu kl 16.00 á föstudeginum fyrir framan Fjörðinn í Hafnarfirði. Á laugardeginum hefst mótið kl 13.30 við Brúnna á Selfossi þar sem keppt verður í Réttstöðulyftu (Ef það verður rigning þá verður Réttstaðan tekin út og sett önnur grein í staðin). Á Selfoss er haldin Bæjarhátíð á sama tíma og fara hinar greinarnar fram á hátíðarsvæðinu um 50m frá brúnni. Þar verður keppt í Kúta og lóðkast yfir rá og Overhead Medley (Sirkus Handlóð - Appalo öxull - Náttúrusteinn á tíma). Mótinu lýkur svo í Hveragerði kl 16.00 þar sem keppt verður í Krossfestulyftu og Medley (Uxaganga, bændaganga og steinatök). Smellið að nánar til að sjá sundurliðaða dagskrá og keppendalista

Síðast uppfært: Föstudagur, 06. ágúst 2010 15:46
Nánar...
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 29. júní 2010 16:39

Uppsveitarvíkingurinn 7.ágúst

Laugardaginn 7.ágúst verður Uppsveitarvíkingurinn haldinn í Hveragerði, Selfossi og þar í kring. Það verða frábær verðlaun meðla annars glæný HP fartölva.  Keppnisgreinar. Kútakast yfir rá, Sirkus Dumbell, Uxaganga, Bændaganga o.fl. Skráning fer fram á hjaltiar(hjá)simnet.is

Selfoss, Borg í Grímsnesi

Ljósm. Rakel Lilja

Páll Logason sigraði Uppsveitarvíkinginn 2009 en þetta var ótrúlega jöfn og spennandi keppni því þegar aðeins ein grein var eftir voru Palli og Orri jafnir í fyrsta sæti með 30 stig og Hafþór með 29 stig ! Síðasta greinin var Húsafellshelluburður en fyrstur í greinina var Stulli sem fór á tímanum 12,25sek. Óli Valur var annar og fór á tímanum 11,81sek og sagðist Hjalti ekki hafa séð svona góðan tíma. Þriðji var Hafþór en hann bætti tíman og fór á 10,22 sek. Hann var alveg ótrúlega fljótur og hefði hann án efa sigrað greinina ef hann hefði verið fljótari að ná steininum upp, þvílík ferð !! Orri var fjórði og bætti tíma Hafþórs um rúmar 2 sekúndur þegar hann náði tímanum 8,04 ! Þarna var maður farinn að velta fyrir sér hvort að Palli myndi ná þessum tíma þar sem hann er lægri en Orri. Palli rífur upp steininn og þýtur af stað og nær ótrúlegum tíma, 7,87sek og þar með búinn að sigra Uppsveitarvíkinginn 2009!
 
Skráning: Hjalti Úrsus: 8978626 eða hjaltiar (hjá) simnet.is

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 15. júlí 2010 10:51
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 19