Aflraunir
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 10. september 2010 17:21

Aflraunakeppni fyrir alla !

Á morgun kl 13.00 verður haldin Íþróttadagur Víkurvagna þar sem verður keppt í smá "þríþraut" Sekkjahlaupi, bekkpressu og réttstöðtulyftu. Keppt verður í Karla-og kvennaflokki þar sem þyngdirnar verða: Sekkur 50kg/25kg, bekkpressa 100kg á reps/40kg á reps, réttstaða 165kg / 100kg á reps. Glæsilegir vinningar t.d 2 kerrur frá Víkurvögnum að verðmæti 130 þús hvor, Bíómiðar, DVD diska frá Senu og fleira. Einnig verður hægt að vinna til verðlauna með því að hitt í Körfu. Hátíðin fer framá Dvergshöfða 27, 110 Reykjavík.

Engin skráning bara mæta á staðinn :)

 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 03. september 2010 13:56

Sterkasti Maður Suðurnesja 2010

Keppnin verður haldin í 7 sinn þetta árið og en í ár verður aðeins keppt á föstudeginumm (í dag) en ekki á laugardeginum eins og venjan er. Mótið hefst kl 15.00 í Reykjanesbæ rétt fyrir neðan Ungó sjoppuna. Þar er stórt tún með hoppukastala, sölubásum og fleiru svo þetta ætti ekki að fara framhjá neinum. Keppnisgreinarnar eru; Uxaganga, Steinalyfta, Náttúrusteinar, Bændaganga oghelluburður.

Keppnisgreinar:

Uxagöngu = 240kg  á tíma 15metra
Steinalyfta 90sek 68kg reps
Náttúrusteinar upp á tunnu á tíma = 90kg - 98kg - 115kg - 130kg (
Bændaganga 105kg í hvorri hendi 15metra velta traktorsdekki til baka.
Helluburður 201kg Hólmsteinsgangan á lengd

Keppendur:

Hannes þorsteinsson 1987
Baldur Friðbjörnsson
Daníel Sæmundsson
Sævar Jóhannsson 110kg
Arngrímur Anton Ólafsson
Jón Þórólfur Ragnarsson

 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 31. ágúst 2010 12:30

Sterkasti Maður Heims 2010 = 15 dagar í átökin !


Þá er komið að keppninni um hver sé Sterkasti Maður Heims og að vanda er Íslendingur í þessum hópi; Stefán Sölvi sem er í fyrsta riðli ásamt, Mark Felix (Bretland) , Brian Shaw (Bandaríkjunum var í 3.sæti í fyrra), Sergey Romanchuk (Úkraínu), Ettiene Smit (Suður-Afríku) og Stoyan Todorchev (Búlgaríu). Keppnin er að þessu sinni haldin Sun-City í Suður-Afríku en það var einmitt þar sem Magnús Ver Magnússon sigraði keppnina í annað sinn árið 1994.

Smellið á nánar til að sjá keppendur og greinar

Nánar...
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 09. ágúst 2010 12:35

UPPFÆRÐUR KEPPENDALISTI
Upplýsingar um Austfjarðartröllið 2010


Keppendur 2009: Hallgrímur, Jón Þór, Úlfur, Valgeir, Hafþór, Jónas
Árni Freyr, Páll og Sturla
Ljósm. Sólveig Bjarnar

Þá fer lokahóf aflraunasumarsins að hefjast ! Austfjarðartröllið 2010 hefst núna á fimmtudaginn kl 11.30 og fer fyrsta grein fram á Hornafirði. Í ár verður keppt í 12 greinum á þrem dögum og eru nú þegar 10 keppendur búnir að skrá sig til leiks ! Hægt er að skrá sig á mótið hjá Magga Ver í síma 663-0001. Smellið á nánar til að sjá ítarlega dagskrá og upplýsingar um keppendur. Ath að þyngd keppenda gæti verið búin að breytast eitthvað en feitletruðu eru nýuppfærð.

Síðast uppfært: Föstudagur, 13. ágúst 2010 11:20
Nánar...
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 04. ágúst 2010 12:01

UPPFÆRT Uppsveitarvíkingurinn = OK Búðarmótið

 
Keppendurnir í fyrra
Ljósm. Rakel Lilja

Þá er komið að mótinu sem áður hét Uppsveitarvíkingurinn en nú OK búðarmótið þar sem það verður ferðatölva í vinning. Keppendur sem hafa staðfest komu sínar eru Hafþór Júlíus, Úlfur Orri, Árni Freyr Stefánsson, Ari Gunnars og Georg Ögmunds. Þeir sem vilja skrá sig á mótið geta haft samband við Hjalta í síma 897-8626. Mótið hefst eins og venjan er á dekkjaveltu kl 16.00 á föstudeginum fyrir framan Fjörðinn í Hafnarfirði. Á laugardeginum hefst mótið kl 13.30 við Brúnna á Selfossi þar sem keppt verður í Réttstöðulyftu (Ef það verður rigning þá verður Réttstaðan tekin út og sett önnur grein í staðin). Á Selfoss er haldin Bæjarhátíð á sama tíma og fara hinar greinarnar fram á hátíðarsvæðinu um 50m frá brúnni. Þar verður keppt í Kúta og lóðkast yfir rá og Overhead Medley (Sirkus Handlóð - Appalo öxull - Náttúrusteinn á tíma). Mótinu lýkur svo í Hveragerði kl 16.00 þar sem keppt verður í Krossfestulyftu og Medley (Uxaganga, bændaganga og steinatök). Smellið að nánar til að sjá sundurliðaða dagskrá og keppendalista

Síðast uppfært: Föstudagur, 06. ágúst 2010 15:46
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL