|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Þriðjudagur, 17. nóvember 2009 15:37 |
FitKid 2009 Þann 1-5 október var haldið Evrópumót í FitKid en mótið fór fram í Ungverjalandi. Þrír keppendur fóru fyrir Íslands hönd; þær Sunna Lind Ingibergsdóttir 10 ára), Edda Rún Sigurðardóttir (14 ára) og Cristina Isabel Agueda (8 ára). Þær æfa allar FitKid hjá Fimleikafélaginu Björk.
Þetta var ótrúlega skemmtileg 5 daga ferð, allir keppendur á mótinu voru saman á 4 stjörnu hóteli svo að það skapaðist mikill vinskapur á milli allra keppendanna. Einn dagur var tekinn í ferð á hestabúgarð þar sem settar voru upp frábærar hestasýningar fyrir hópinn. Þetta var gríðarlega sterkt mót og stóðu stelpurnar sig mjög vel og voru Íslandi til mikils sóma. Sunna Lind náði sér í 4.sætið í sínum flokk, Cristina Isabel í 5.sætið í sínum flokk og Edda Rún það 15.í flokknum sínum. Þetta var mikið ævintýri fyrir stelpurnar og ætla þær allar að stefna á fleiri erlend mót. Fitkid er frábær íþrótt fyrir krakka á aldrinum 5-18 ára, síðan þegar þú ert orðinn 18 ára færist þú upp í FitWoman og bætist þá við að koma fram í síðkjól og bikiní. Í Fitkid er keppt í svokallaðri rútinu, það felur í sér að gera dans á 10x10 gólfi, það má vera hvaða lag sem er og hvernig dansstíll sem er, inn í dansinum þurfa að vera 2skylduæfingar úr hverjum flokk, flokkarnir skiptast í þrekæfingar, liðleikaæfingar, fimleikaæfingar, og hopp þannig að samtals þarf æfingin að innihalda 8 móment og svo þarf að framkvæma eina seríu sem inniheldur 2 fimleikaæfingar tengdar saman. Skylduæfingarnar eru valdar úr æfingarbók en þar eru allar æfingar sem hafa gildi í FitKid flokkaðar í ABCD þar sem D hefur mesta erfiðleikagildið, og það er það sem gerir þessa íþrótt svo frábæra að hver sem er getur verið í henni, maður þarf hvorki að hafa fimleika né íþróttagrunn og getur byrjað á hvaða aldri sem er.
Fitkid er kennt eins og er, í Fimleikafélaginu Björk og á Selfossi og mun að öllum líkindum byrja í Reykjavík og á fleiri stöðum eftir áramót. Allar nánari upplýsingar um FitKid er hægt að fá með því að hafa samband við Eddu Dögg Ingibergsdóttir, yfirþjálfara Fitkid. Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
http://www.fitkid.is http://www.fitnesssport.org/emain.html |
|
|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Mánudagur, 19. október 2009 16:15 |
Icefitness 2009: Skráning hafin Eva sigurvegari 2007-2008 Ljósm.Sunna Hlín
|
Skráning er hafin í Icefitness sem fer fram 12. og 14.nóvember. Samanburður fer fram fimmtudaginn 12.nóvember og keppninn sjálf fer fram á laugardeginum 14. nóvember í Reykjanesbæ.
Keppninn verður með svipuðu sniði og 2008 í opnum flokki en einnig verður keppt í unglingaflokki, 16-17 ára í kvenna flokki og 16-19ára í karlaflokki. Í unglingaflokki er vægi samanburðar minna eða 20% og kröfur um skurð eru mildari. Keppnisgreinar í kvenna flokki eru armbeygjur, fitness greip, hraðaþraut og samanburður. Keppnisgreinar í karla flokki eru upphífur, dýfur hraðaþraut og samanburður. Sævar sigurvegari 2007-08 Ljósm.Sunna Hlín
|
Keppninn verður tekinn upp og gerður verður glæsilegur sjónvarpsþáttur um mótið sem sýndur verður á Sjónvarpinu, RÚV, á besta tíma. Það stefnir í hörku spennandi keppn. Skráningar fara fram á netfanginu
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og lýkur 5.nóvember. Ef einhverjar spurningar eru hikið ekki við að hafa samband við Vikar í 899 0501 |
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 22. október 2009 10:01 |
|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Sunnudagur, 15. nóvember 2009 16:39 |
Heildarúrslit Icefitness komin inn!Hægt að sjá þau hér |
|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Föstudagur, 06. nóvember 2009 16:43 |
Keppendur Icefitness 2009 !!
Þá er skráningu á Íslandsmót Icefitness 2009 lokið og eru 12 keppendur skráðir til leiks. Samanburðurinn fer fram í Andrews Leikhúsinu 12.nóvember kl 20.00 og kostar 1.000kr inn.
Þrautabrautin fer svo fram laugardaginn 14.nóvember kl 16.00 í Íþróttahúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ og er aðgangseyrir 2.000kr og 500kr fyrir börn ingri en 12 ára. Smellið á Nánar til að sjá keppendalistann með myndum |
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Föstudagur, 10. júlí 2009 14:48 |
Íslandsmót Icefitness 2009 Íslandsmót Icefitness verður haldið á þeim dýrðar degi 14.nóvember næstkomandi (afmælisdagurinn minn hehe) Vikar í líkamsræktarstöðinni Lífstíl í Keflavík mun sjá um mótið líkt og í fyrra. Í fyrsta sinn ætlar Icefitness að bjóða upp á Unglingamót samhliða Íslandsmótinu. Stelpur á aldrinum 16-17ára og strákar 16-19 ára. Ekki verða gerðar sömu kröfur á skurð eins og í eldri flokknum og mun hann gilda 20%. Nánari upplýsingar um Unglingamótið og staðsetning mótanna koma á netið í byrjun ágúst.
Hér til hliðar er grein úr Séð & Heyrt sem ég skannaði inn en þetta birtist þar 15.-21.nóvember 2007 smellið á myndina til að sjá í fullri stærð. Setti einnig inn viðtal við Önnu Bellu sem birtist í sama blaði hér. (Smellið á myndirnar til að lesa viðtalið) |
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 10. júlí 2009 15:30 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 4 |