Vaxtarrækt
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 19. júní 2009 13:33

Maggi Bess á EM Öldunga

Maggi Bess Ljósmynd: Guðný AG
Ljósmynd: ©GudnyAg

Magnús Bess mun keppa á Evrópumóti Öldunga í vaxtarrækt sem fram fer í Rúmeníu 27.-28.júní næstkomandi. Sigurður Gestsson og Kristín Kristjánsdóttir munu keppa á sama móti. Hópurinn leggur af stað þann 25.júní en ferðin tekur sólarhring til Baia Mare í Rúmeníu þar sem mótið fer fram.

Maggi Bess hefur nú keppt á þremur mótum á árinu og þar af tveim erlendis. Árangur hans á þessum mótum hefur verið landi og þjóð til sóma, þar má telja 1. sæti á Grand Prix mótinu í Osló, 2. sæti á Loaded Cup í Danmörku og var Íslandsmeistari í Vaxtarrækt um páskana. Einnig var hann valinn Íþróttamaður ársins innan IFBB alþjóðasambandsins.

Síðasta haust náði hann svo langþráðu markmiði sínu en það var að verða Norðurlandameistari í -100 kg flokki í vaxtarrækt. Góður árangur hans undanfarið gerir hann sigurstranglegan á EM.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 25. júní 2009 13:32
Nánar...
 
Miðvikudagur, 04. mars 2009 20:52

Dagur í Lífi Victor Martinez

Nú styttist í Arnold Classic og eru margir sem spá Victori Martinez sigri en hann sigraði mótið árið 2007. Hann gat ekki keppt árið 2008 vegna meiðsla en hann sleit vöðva í framanverðu læri þegar hann var að hita upp fyrir æfingu. Muscular Development hefur nú tekið upp dag í lífi Victors.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 04. mars 2009 21:05
 
Mánudagur, 27. október 2008 15:21

Myndir frá Íslandsmótinu 2004

Vorum að setja inn myndir frá Íslandsmóti vaxtarrækt sem haldið var 2004, ljósmyndari var Heiða. Ef þið eigið einhverjar myndir frá gömlum mótum þá væri gaman ef þið gætuð deilt þeim með okkur, endilega hafið samband í pósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Ég hef oft fengið fyrirspurnir um hvort ég viti um myndir frá eldri mótum og þá sérstaklega fyrstu vaxtarræktarmótinum sem voru haldin. 

-70kg fl Vaxtarrækt
Íslandsmót IFBB

Heiða
-90kg fl Vaxtarrækt
Íslandsmót IFBB

Heiða

+90kg fl Vaxtarrækt
Íslandsmót IFBB

 Heiða

Kvennafl Vaxtarrækt
Íslandsmót IFBB

Heiða

Overall
Íslandsmót IFBB

Heiða

Unglingaflokkur
Íslandsmót IFBB

Heiða
 

 
Þriðjudagur, 30. september 2008 11:45

3 Daga í MR.OLYMPIA

Ef það hefur farið framhjá einhverjum þá er Mr.Olympia um næstu helgi !!! Nú er spurning hvort að Jay Cutler sé að fara vinna sinn þriðja Shadow bikar og titilinn Mr.Olympia. Í fyrra var Victor Martinez rétt á eftir Jay og var mörgum farið að hlakka til að sjá hvort Victor myndi sigra Jay á Mr.Olympia 2008. Því miður verður ekkert úr þeim bardaga þar sem Victor slasaðist á hné. Tveir aðrir góðir kappar sem búið var að spá top 6 hafa einnig þurft að hætta við mótið í ár eftir meiðsli. Það eru þeir Branch Warren, sem reif þríhöfða, og Kai Green sem er með kviðslit.

Margir hafa verið að reyna spá fyrir um úrslit og er Jay Cutler nær alltaf settur í fyrsta sæti. Dexter hefur verið spá 2.-4.sæti og Dennis Wolf settur í 2.-3.sæti. Phil Heath er næstum alltaf settur í 4.sæti

Bodybuilding.com ætlar að sýna beint frá keppninni og verður hægt að horfa á keppnina HÉR

Bodybuilding.com hefur undanfarnar vikur verið að taka viðtöl við keppendur þar sem er farið með þeim á æfingu.

Keppendalisti....

Nánar...
 
The Road to Mr.Olympia hafinn !
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008 00:00

The Road to Mr.Olympia hafinn !

Líkt og í fyrra þá ætlar Bodybuilding.com að vera með þætti fram að Mr. Olympia. Í þáttunum tekur Bob Cicherillo viðtöl við alla þá bestu í bransanum, konur og karla, sem eru að fara keppa í ár. Fyrsti þátturinn er viðtal við Jay Cutler þar sem hann segist ætla að vera skornari í ár og fylgst með honum á æfingu.

1.þáttur

Jay Cutler

 

 

 

2.þáttur
 
Gustavo Badell


 

3.þáttur
 
Dexter Jackson

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL