Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 04. ágúst 2010 12:01

UPPFÆRT Uppsveitarvíkingurinn = OK Búðarmótið

 
Keppendurnir í fyrra
Ljósm. Rakel Lilja

Þá er komið að mótinu sem áður hét Uppsveitarvíkingurinn en nú OK búðarmótið þar sem það verður ferðatölva í vinning. Keppendur sem hafa staðfest komu sínar eru Hafþór Júlíus, Úlfur Orri, Árni Freyr Stefánsson, Ari Gunnars og Georg Ögmunds. Þeir sem vilja skrá sig á mótið geta haft samband við Hjalta í síma 897-8626. Mótið hefst eins og venjan er á dekkjaveltu kl 16.00 á föstudeginum fyrir framan Fjörðinn í Hafnarfirði. Á laugardeginum hefst mótið kl 13.30 við Brúnna á Selfossi þar sem keppt verður í Réttstöðulyftu (Ef það verður rigning þá verður Réttstaðan tekin út og sett önnur grein í staðin). Á Selfoss er haldin Bæjarhátíð á sama tíma og fara hinar greinarnar fram á hátíðarsvæðinu um 50m frá brúnni. Þar verður keppt í Kúta og lóðkast yfir rá og Overhead Medley (Sirkus Handlóð - Appalo öxull - Náttúrusteinn á tíma). Mótinu lýkur svo í Hveragerði kl 16.00 þar sem keppt verður í Krossfestulyftu og Medley (Uxaganga, bændaganga og steinatök). Smellið að nánar til að sjá sundurliðaða dagskrá og keppendalista

Síðast uppfært: Föstudagur, 06. ágúst 2010 15:46
Nánar...
 
Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 24. júlí 2010 13:03

Úrklippur

Víkurfréttir.is

Sturla sterkastur

 

 

Íþróttir | 24. júlí 2010 | 13:03:43

Sturla Ólafsson sigraði nýverið í keppninni um Sterkasta mann Íslands, -105 kg annað árið í röð.

Fyrsta greinin var lóða og kútakast yfir rá á tíma. Kastað var 15 kg bjórkút, tveimur 16 kg ketilbjöllum, 20 kg bjórkút og 25 kg lóði yfir 3,65m. Sturla sigraði í þessari grein á 17,02 sek. Næsti á eftir var á 19,21 sek. Frábær spenna í þessari grein.

Næsta grein var 50 kg Sirkus handlóð á 90 sek. Andri Björns tók mjög traustan sigur með 13 lyftur. Sturla deildi þar öðru sætinu með 10 lyftur.

Þriðja grein var vel þungur trukkadráttur með traktor upp mikinn halla og dregið 25 metra á hellulagðri gangstétt. Aðeins tveir menn gátu klárað og það voru reynsluboltarnir, Árni Freyr og Sturla, en Sturla var með betri tíma, 58,4 sek. en Árni fór brautina á 74,65 sek.

Næsta grein var 105 kg bóndaganga, 25 metrar á tíma. Eina ferðina enn var mikil spenna í greininni og Árni Freyr og Sturla voru næstum jafnir á tíma en Stulli vann með 10,03 sek á móti 10,75 sek.

Síðasta greinin var Atlassteina hleðsla, 90, 110, 125 og 140 kg. Úrslit þessarar greinar kom mörgum á óvart þar sem Andri Björns var sá eini sem náði að klára greinina. Steinarnir voru á grasi og þegar menn eru með harpix á puttunum festist grasið bara í harpixinu og það truflaði vissulega keppendur. Árni Freyr var í öðru sæti í þessari grein og Sturla í þriðja, báðir undir 20 sek. með 3 steina.

Annar Suðurnesjamaður, Daníel Sæmundsson tók þátt í keppninni og hafnaði í 8. sæti.

 
Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 23. júlí 2010 12:10

Grundarfjarðartröllið ekki haldið í ár

Keppnin um Grundarfjarðartröllið verður því miður ekki haldið í ár .

 
Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 21. júlí 2010 13:12

Hvað er að frétta Sigfús Fossdal ?

Síðustu mánuði hefur verið nóg að gera hjá Sigfúsi þar sem hann var að undirbúa sig fyrir Evrópumót WPF, opnaði gym, skipulagt mót, eignat litla stelpu og ýmislegt fleira.
 

Félagarnir Páll Logason & Sigfús Fossdal á HM WPF 2009 sem haldið var í Las Vegas
Ljósm. Ingibjörg Óladóttir

Nú varstu mótshaldari á nýafstöðnu Evrópumóti WPF hvernig fannst þér útkoman ?

Evrópumótið á Akureyri var að mínu mati mjög gott mót. Undirbúiningurinn var mjög erfiður, sérstaklega í ljósi þess að EPC ákvað í lok maí að aflísa EM en viku seinna var það sett á aftur. Þetta gerðu þeir út af eldgosinu sem á þessum tíma var að hætta. Vegna þessa var lítið um útlendinga þarna, en það kom aldrei til greina af okkar hálfu að gefast upp þar sem að mikið var skráð af íslendingum á mótið, og vildum ekki bregðast þeim.
Nánar...
 
Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 16. júlí 2010 15:05

Ísland í öðru sæti á smáþjóðaleikum


Sigurður, Hrannar, Gísli, Erlendur og Guðmundur Helgason
fararastjóri í fanginu á strákunum

Smáþjóðaleikarnir í ólympískum lyftingum 2010 voru haldnir í Kýpur um síðustu helgi. Ísland sendi fjögurra manna lið, sem náði öðru sæti á mótinu. Aðrar þjóðir sem tóku þátt voru Kýpur, Malta, Luxemburg og San Marínó. Lið Kýpurbúa sigraði í leikunum og Luxemburg varð í þriðja sæti.
 
Smellið á Nánar
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 138
Núllað 12.ágúst
Website counter

 
VERÐUR FRESTAÐ !!
11.september
Íslandsmeistaramót WPC

í Kraftlyftingum


15.-21.september
 Sterkasti Maður Heims 2010

Sun-City, Suður-Afríku
Stefán Sölvi keppir
 
 
18.september
Bikarmót AFA í Drumbalyftu

Suðurlandi
Skráning: afa(hjá)aflraunir.net
 
 
17.-18.september
Vestur-Evrópukeppnin
í Kraftlyftingum EPF

Hamm, Lúxemborg
Skráning: Hafið samband við KRAFT
 
Allur listinn Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

7.ágúst
Uppsveitarvíkingurinn
Selfoss, Borg í Grímsnesi
Skráning: Hjalti Úrsus: 8978626 eða
hjaltiar(hjá)simnet.is Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 


12.-14.ágúst
Austfjarðartröllið

Skráning: magnusver63(hjá)hotmail.com

 

14.ágúst
Guttormsmótið í Bekkpressu
og Ísl.mót ÍKF METAL í Réttstöðulyftu

Allur listinn
Það eru 24 gestir á síðunni núna