Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 06. júlí 2010 10:14

 Monica Brant með F.E.M Camp á Íslandi !


Monica Brant og Hildur Edda 2007
Ljósm. Einkasafn


Nýjustu fréttir eru þær að Monica Brant, fitnesskeppandi, sé að fara koma til Íslands 16.-17.nóvember (klárlega bara til að koma í afmælið mitt;) ) og ætlar að vera með F.E.M Camp en það er 2 daga námskeið þar sem farið er yfir heilsusamlegt líferni, æfingar, fitnesspósur, framkomu og fleira. Monica kennir á námskeiðinu hvernig þú getur komist í besta form lífs þíns með því að deila fitness og næringarráðleggingum sínum. Allar upplýsingar er hægt að finna á heimasíðunni hennar femcamp.net. 

 

Ein íslensk stelpa hefur farið á námskeiðið hjá henni í Bandaríkjunum en það var hún Hildur Edda sem fór árið 2007 Ferðasaga og upplifun hennar á námskeiðinu er að sjálfsögðu hér inn á vodvafikn.net .

 


 
Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 05. júlí 2010 12:00

Aflraunasumarið 2010 !

Hérna er listi yfir þau mót sem eru eftir í sumar og þær upplýsingar/keppendalistar sem eru til :)

7.ágúst

Uppsveitarvíkingurinn = OK Búðarmótið

 
Keppendurnir í fyrra
Ljósm. Rakel Lilja

Þá er komið að mótinu sem áður hét Uppsveitarvíkingurinn en nú OK búðarmótið þar sem það verður ferðatölva í vinning. Keppendur sem hafa staðfest komu sínar eru Hafþór Júlíus, Úlfur Orri, Árni Freyr Stefánsson, Ari Gunnars og Georg Ögmunds. Þeir sem vilja skrá sig á mótið geta haft samband við Hjalta í síma 897-8626. Mótið hefst eins og venjan er á dekkjaveltu kl 16.00 á föstudeginum fyrir framan Fjörðinn í Hafnarfirði. Á laugardeginum hefst mótið kl 13.30 við Brúnna á Selfossi þar sem keppt verður í Réttstöðulyftu (Ef það verður rigning þá verður Réttstaðan tekin út og sett önnur grein í staðin). Á Selfoss er haldin Bæjarhátíð á sama tíma og fara hinar greinarnar fram á hátíðarsvæðinu um 50m frá brúnni. Þar verður keppt í kútakasti og Overhead Medley (sirkus dumbell, öxull og nátturusteinn). Mótinu lýkur svo í Hveragerði kl 16.00 þar sem keppt verður í Krossfestulyftu og Medley (Uxaganga, bændaganga og steinatök). Smellið hér til að sjá sundurliðaða dagskrá og keppendalista

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


12.-14.ágúst - Austfjarðartröllið


Ljósm. Sólveig Bjarnar
 
Ekki komin nein dagskrá fyrir mótið
 
Skráning: magnusver63(hjá)hotmail.com
 
 --------------------------------------------------------------------------------------

Mótum sem er lokið: 

5.júní - Sterkasti Maður á Íslandi

Haldin í Grindavík á Sjómannadaginn

Grétar Guðmundsson aka the REAL Big G á IFSA Sterkasti 2008 - Ælti hann láti sjá sig í ár ?
Ljósm. Hjörtur Hjartarson - vodvafikn.net

 

Svo að fólk ruglist ekki þá eru til tvö aflraunamót sem heita nánast það sama. Fyrra mótið sem er haldið heitir Sterkasti Maður Á Íslandi og er haldið af Félagi íslenskra kraftamanna og var hér áður kallað IFSA Sterkasti Maður á Íslandi.

Seinna mótið er mótið sem Jón Páll, Magnús Ver, Boris, Stefán Sölvi og fleiri sterkir menn hafa unni: Sterkast Maður Íslands. En það er úrtökumót fyrir keppnina um Sterkasta Mann heims. Ef þið smellið á myndirnar í fréttinni þá fari þið í albúmið frá því móti

Mótið um Sterkasta Mann á Íslandsi verður haldið á nýjum stað; Grindavík á sjómannadaginn. Skráning: magnusver63(hjá)hotmail.com. Greinarnar sem verða á mótinu; staðfestar af Magga Ver. 

1. Circus dumbell upp fyrir haus

2. Uxaganga og bóndagöngu medley.
Ofur þungt Super Yoke = 450kg á þyngd. Bóndaganga til baka með 170kg í hvorri hönd.

3. Trukkadráttur

4. Réttstaða
Annað hvort upp á reps eða þyngd

5. Kúlusteinn á reps.
Líklegast 160-175kg á þyngd. Jafnvel einn þungur og einn léttari fyrir þá sem ná ekki þunga.

6. Mylluganga./Conans Wheel

8 keppendur eru nú þegar skráðir á mótið og gaman að sjá Heisa aftur á keppendalist en hann slasaðist illa á keppninni Sterkasti Maður Íslands í fyrra og náði ekkert að keppa það sumarið.

Orri Geirsson
Hafþór Júlíus Björnsson
Páll Logason
Óli Valur Guðjónsson
Sturla Ólafsson
Heiðar Geirmundsson
Úlfur Orri Pétursson
Jón Þór Ásgrímsson 

 

19.júní - Kraftavíkingurinn 

Fjörukránni í Hafnarfirði á Víkingarhátíðinni


Kátir karlar - virkilega skemmtileg keppni þar sem allir keppendur
voru mjög mikið berir að ofan, frábært framtak ;)

Ljósm. Sunna Hlín

Mótið í fyrra sigraði Páll Logason en mótið verður haldið á sama stað og undanfarin ár. Keppt verður í tvem flokkum: -105kg flokk og +105kg flokk. Greinarnar verða svipaðar og undanfarin ár en það hefur oftast verið: Kúlusteinn yfir rá, Kúlusteinar upp á tunnur á tíma, Bíla-Réttstöðulyfta, bóndaganga, dumbell yfir haus (nokkrar þyngdir). Skráning: magnusver63(hjá)hotmail.com

 

16.-17.júní - Sterkasti Maður Íslands

Húsdýragarðurinn 16.júní - Miðbær Reykjavíkur og Mosó 17.júní


Stefán Sölvi, Palli og Árni - Hressir í Fjölskyldugarðinum eftir ágang aðdáenda,
áritanir og nokkra snúninga í leiktækjum garðsins
(sjá myndir af þeirri ferð með því að smella á myndina)
Ljósm. Sunna Hlín

Mótið í fyrra sigraði Stefán Sölvi Pétursson. Keppendur sem lenda í þrem efstu sætunum munu komast áfram á Jon Pal Sigmarsson Classic 19.-20.nóvember. Mótið verður svipað og hefur verið undanfarin ár en það verða einhverjar smávægilegar breytingar með greinar og Hjalti lofaði að hnébeygjan væri dottin út. Skráning: Hjalti Úrsus: 897-8626 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
 

Keppnisgreinar:

16.júní - Fjölskyldugarður kl: 15:00
 
1. Maximum réttstaða 4 tilraunir, gæti veið kerra eða eitthvað annað.
2. 25kg lóðakast yfir rá
3. Pressuþraut
Náttúrusteinn 110kg - Öxull 130kg - Drumbur 150kg - Risa handlóð 80kg
4. Hleðslugrein - hleðsla og sleðadráttur
 
17.júní - Vonarstræti Miðbær Reykjavíkur
 
5. Yoke 380kg 30m á tíma
 
17. júní Mosfellbær kl 16:00 / Við Hlégarð
 
6. Risa handlóð 80kg á reps
7. Atlas steinahleðsla
8. Helluburður – Húsafellshellan 
 
Skráðir keppendur:
Benedikt Magnússon
Stefán Sölvi
Páll Logason
Orri Geirsson
Heiðar Geirmundsson
Hafþór Júlíusson

 
 

3.-4.júlí - Viðeyjarjarlinn

Keppendur undir -105kg keppa um hver sé Sterkasti Maður Íslands

Smellið á nánar til að fá allar upplýsingar

Í fyrra sigraði Sturla Ólafsson keppnina en mótið verður haldin í Viðey að þessu sinni og keppnin fengið nafnið Viðeyjarjarlinn. Mótið hefst kl 13.00 og lýkur kl 16.00.
 
Mótið verður svo sýnt á Stöð2sport. Keppnisgreinar. Atlassteinar, 90kg, 110kg, 125kg, 140kg, Bændaganga 100kg. Hönd yfir Hönd/eða Trukkadráttur, Sirkus handlóð 50kg, Ketilbjöllukast yfir rá 5 bjöllur á tíma. Greinum gæti verið breytt á keppnisdag. 
 
Þeir sem vilja vigta sig kvöldið áður geta hringt í Hjalta Úrsus 897-8626, annars verður vigtað um morguninn kl 11:00
 
Keppendur: ath ennþá er hægt að skrá sig á mótið 897-8626
Smellið á nafn keppenda til að skoða prófíl
Andri Björnsson
191cm - 105kg - 1985
Andri Björnsson
Ljósm. Sunna Hlín
Árni Freyr Gestsson
1984
Árni Freyr Gestsson
Ljósm. Sunna Hlín
Daníel Þór Gerana
Geir Jón Geirsson
182cm - 97kg - 182cm
Geir Jón Geirsson
Ljósm. Sunna Hlín
Hafliði Arnar Bjarnason
1993
Hafliði Arnar Bjarnason
Ljósm. Einkasafn
Sturla Ólafsson

Sturla Ólafsson
Ljósm. Sunna Hlín
 
Glæsilegir vinningar í boði fyrir þátttakendur og sérstök verðlaun veitt fyrir sterka gesti! Allir hvattir til þess að taka þátt! Kraftmikill matseðill verður í Viðeyjarstofu. Ferjutollur 1.000 kr fyrir fullorðna og 500 kr fyrir börn 7-18 ára. Nánari upplýsingar fást í síma 533-5055.
 
KEPPENDUR ATH ! þar sem mótið byrjar kl 13.00 væri gott ef þið færuð með ferjunni kl 11.00 (það er frítt fyrir keppendur í ferjuna

8.-10.júlí Vestfjarðarvíkingurinn


Stefán Sölvi og ungur aðdáandi á Vestfjarðarvíkingnum
Ljósm.Sunna Hlín

Nánar...
 
Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 05. júlí 2010 11:10

81 dagur í MR.Olympia !

 

"My first contest meal for this years MR.Olympia 2010... TIME TO KILL PEOPLE!!!!

Ljósm. Einkasafn

 
Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 03. júlí 2010 17:57

Sturla er Viðeyjarjarlinn 2010

Smellið á myndina til að fara í albúm - restin af myndunum á Flickr myndasíðuna


Keppendur og aðstoðarmenn
Ljósm. Sunna Hlín

1. Kast yfir rá

5 hlutir yfir rá 3,65m/12fet á tíma - 15kg bjórkútur - 2x16kg ketilbjalla - 20kg bjórkútur - 25kg lóð

Fyrsta grein mótssins var nýtt fyrirbæri á íslandi, en það var kast yfir rá á tíma. Árni freyr var fyrstur til að byrja og náði glæsilegum tíma, 19,21sek. og hélt besta tímanum þar til kom að Stulla en Stulli mætti ferskur í köstin og bætti tíman um tvær sek og var með 17,02sek.  frábær spenna í þessari grein því Andri Björns var með frábærann tíma líka, aðeins sekúntubrotum frá Árna, 19,57sek.  - powerstuff.blogcentral.is


Þröstur - Ljósm. Stulli & Gulla

Sæti
Nafn
15kg
16kg
16kg
20kg
25kg
1.
Sturla     17,02sek
2.
Árni 
    19,21sek
3.
Andri     19,57sek
4.-8.
Brynjar   x
 
4.-8.
Daníel Þór     x
 
4.-8 Geir Jón 
   x
 

4.-8.

Kolbeinn   x
 
4.-8. Þröstur    x
 
9.-10
Daníel S
  x
  
9.-10 Hafliði   x
  
11.
Sigurður x
    
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 06. júlí 2010 18:51
Nánar...
 
Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 29. júní 2010 13:50

Myndir: Evrópumót WPF í Bekkpressu Íslandi 2010


Ljósm. JóFó

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 9 af 138
Núllað 12.ágúst
Website counter

 
VERÐUR FRESTAÐ !!
11.september
Íslandsmeistaramót WPC

í Kraftlyftingum


15.-21.september
 Sterkasti Maður Heims 2010

Sun-City, Suður-Afríku
Stefán Sölvi keppir
 
 
18.september
Bikarmót AFA í Drumbalyftu

Suðurlandi
Skráning: afa(hjá)aflraunir.net
 
 
17.-18.september
Vestur-Evrópukeppnin
í Kraftlyftingum EPF

Hamm, Lúxemborg
Skráning: Hafið samband við KRAFT
 
Allur listinn Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

7.ágúst
Uppsveitarvíkingurinn
Selfoss, Borg í Grímsnesi
Skráning: Hjalti Úrsus: 8978626 eða
hjaltiar(hjá)simnet.is Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 


12.-14.ágúst
Austfjarðartröllið

Skráning: magnusver63(hjá)hotmail.com

 

14.ágúst
Guttormsmótið í Bekkpressu
og Ísl.mót ÍKF METAL í Réttstöðulyftu

Allur listinn
Það eru 27 gestir á síðunni núna