Senda í tölvupóst
Föstudagur, 06. október 2006 00:00

Heiðrún keppir á Norðurlandamótinu 2006

Jæja nú er fitness skvísan Heiðrún að fara út næstu helgi að keppa í Svíþjóð á Norðurlandamóti.. and guess what .. HVERGI FJALLAÐ UM ÞAÐ .. jebb alltaf er þetta eins.. en auðvitað læt ég þetta ekki fram hjá mér fara og fékk Heiðrúnu til að segja okkur aðeins frá þessu . . .


Í keppnisferð í Svíþjóð 2006

Hvað er að gerast ?

Ég er að fara á Norðurlandamót núna um helgina 21.-22. október:) í Karlstad í Svíþjóð. Það stefnir í mjög góða þátttöku.... hlakka mjög til að fara.

Þessi keppni er mjög svipuð og aðrar keppnir sem ég vön að fara á. Keppt verður í Athletic Fitness- með Hindrunarbraut, upphýfingum og dýfum. Bodyfitness, Vaxtarrækt og Classic Bodybuilding.


Hefurðu keppt í svipuðu móti?
Hef 2x keppt á Norðurlandamóti og varð í 3.sæti í bæði skiptin. Þetta er samt í fyrsta skipti sem það er haldið að til hausti.

Ferðu með einhverjum ?
Nei ég fer ein

Hvaða sæti stefnirðu að ?
Ég stefni alltaf á úrslit og Topp 3 er alltaf draumur. En ég vil aldrei vera með einhverjar yfirlýsingar. Ég fer bara með því hugarfari að gera mitt besta og svo kemur bara í ljós hvað það skilar manni.


Veistu um einhverja aðra keppendur?
Já ég er farin að kannast við nokkra en það eru margar nýjar í mínum flokk sem ég þekki ekki.. þannig að það verður bara gaman að keppa við nýjar stelpur.

Hvað verður lengi
Fer á föstudegi og heim á mánudegi.

Á dögunum var þér boðið út til Danmerkur til að vera Calander girl fyrir fitness dagatal. Eitthvað sem þú getur sagt okkur um þa?
Mér verður boðið út í desember til Gautaborgar. Þar verð ég ásamt hinum stelpunum á dagatalinu að árita dagatalið sem kemur í i desember:) hlakkar mjög til!! þetta er mjög stórt dæmi þarna, mikil sýning í kringum þetta:) það kom t.d út grein í sænska fitness-tímaritinu BODY og með mynd af mér sem auglýsti dagatalið hehe. ég mun hitta ritstjórann um helgina og hann ætlar að gefa mér eintak.

Hvenær var ákveðið að keppa á mótinu ?
Ég ákvað það bara strax. þetta eru mót sem við förum alltaf á. stutt og þægilegt að fara.


 
<< Fyrsta < Fyrri 171 172 173 174 175 176 177 178 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Mót framundan

Ef nafn keppni er gul þá er hægt að smella á nafnið og fá nánari upplýsingar

1.-2.febrúar
Arnold Amateur 2012

Columbus, Ohio
18 íslenskar stelpur keppa

2.-3.febrúar
Arnold Strongman Classic 2012

Hafþór Júlíus keppir





Það eru 32 gestir á síðunni núna