|
Skrifað af: Ragga Nagli
|
|
Fimmtudagur, 11. febrúar 2010 00:00 |
Lyftingar á NiðurskurðatímabiliGrein eftir Röggu Nagla
Það er algeng bábilja meðal líkamsræktarfólks að í megrun, hvort sem það þýðir undirbúningur fyrir keppni eða almennt fitutap hjá meðaljóninum, sé best að lyfta mörg reps til að brenna sem mestri fitu. Þó að æfing með mörgum repsum, með stuttri hvíld, brenni talsvert mörgum hitaeiningum þá á þjálfun í megrun að einblína á að viðhalda vöðvamassa en ekki að stuðla að fitutapi. Fitutap á aðallega að koma í gegnum mataræðið. Restin af fitutapinu kemur síðan úr brennsluæfingum (HIIT, lotuþjálfun, SS). Lóðaþjálfun á að fókusa á að viðhalda styrk eða verða sterkari og halda í þann massa sem við höfum, en ekki fókusa á fitutap. Látum hina 23 tíma sólarhringsins sjá um fitutapið. Eins ber að hafa í huga að því meiri massa sem við höldum í því meiri er brennslan hvort sem er í ræktinni eða heima að horfa á imbann.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
Skrifað af: Ragga Nagli
|
|
Miðvikudagur, 09. desember 2009 17:49 |
Óhugnanlegar afleiðingar megrunar Grein eftir Röggu Nagla Árið 1950 var gerð rannsókn á áhrifum megrunar á hegðun og hugarfar (Keys et. al, 1950). Þessi rannsókn myndi klárlega ekki fá samþykki Siðanefndar í dag, en er engu að síður mikilvæg heimild sem varpar ljósi á áhrif langvarandi megrunar. Þátttakendur voru heilbrigðir karlmenn í góðu formi og við góða andlega heilsu. Í sex mánuði var hitaeininganeysla þeirra skorin niður um helming og þetta tímabil endaði með góðri átveislu í nokkra daga. Niðurstöðurnar voru sláandi. Gríðarlegar breytingar urðu á hegðun, hugarfari og félagslegu atgervi þessarra manna og þær vörðu lengi eftir að rannsókn lauk.
Þráhyggjuhugsanir, draumar og samtöl um mat urðu mjög áberandi, sem og óeðlilega mikill áhugi á matseðlum, uppskriftum sem áður var ekki til hjá þessum mönnum. Eins varð þráhyggja um tímasetningar á máltíðum áberandi sem og óhófleg neysla á kaffi og þurfti að takmarka neyslu þeirra í 9 bolla á dag!! Margir fengu átraskanir, þar sem þeir misstu sig í óhófleg átköst sem enduðu með uppköstum og sjálfsfyrirlitningu og lélegri sjálfsmynd. Eftir langvarandi megrun virðist sem stöðin í heilanum sem stjórnar seddutilfinningu ruglist svo maður er aldrei saddur en það gerðist einmitt hjá þátttakendunum. Þeir gátu borðað og borðað en urðu aldrei almennilega saddir. Það er eins og líkaminn sé að bregðast við eins og matur verði aldrei í boði aftur.
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 10. desember 2009 23:30 |
|
Nánar...
|
|
|
Miðvikudagur, 14. október 2009 13:13 |
Það er ekki í tísku lengur að vera svangur !
Grein eftir Röggu Nagla Það er gömul mýta að til þess að grennast eða missa kíló eigi fólk að svelta sig og vera hungrað allan daginn. Megrunarkúrar hafa verið vinsælir í gegnum tíðina og má nefna nokkur dæmi eins og Atkins, greipsafakúrinn, súpukúrinn, ekki borða neitt fyrir kl. 18, kolvetnasnauði kúrinn og svo mætti lengi telja. Staðreyndin er hins vegar sú að þegar fólk hættir í megrunarkúrum og byrjar að borða eðlilega þá gerist það nær undantekningalaust að kílóin koma aftur og jafnvel fleiri til. Af hverju gerist það??
Fituvefur er langtímaorka. Í gamla daga þegar forfeður okkar reikuðu sársvangir í örvæntingarfullri leit að æti þá var það fituforðinn sem þeir höfðu safnað á sig í góðæri sem veitti þeim orku.
|
|
Nánar...
|
|
|
Fimmtudagur, 27. ágúst 2009 11:49 |
Þetta snýst allt um matarræðiðGrein eftir Röggu Nagla Algeng mistök sem margir gera, sérstaklega kvenpeningurinn, er að hamast og djöflast í járninu til að byggja upp vöðva en borða síðan eins og Belzen fangar. Mörgum konum hættir nefnilega til að vera í ævilangri megrun, og eru skíthræddar við nálina á vigtinni. Fari hún upp á við er lífið ónýtt og ósanngjarnt, og gripið er til dramatískra aðgerða. Sultarólin reyrð í innsta gat og hangið á brennslutækjunum þar til lungun biðja um miskunn. Naglinn þekkir þetta allt saman of vel frá fyrri tíð.... |
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 27. ágúst 2009 12:36 |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 8 |