Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ragga Nagli   
Mánudagur, 10. ágúst 2009 16:21

Heitar skonsur gefa ráð !


                                                               Grein eftir Röggu Nagla                   

Nokkrar sjóðheitar skonsur, sem eru miklar fyrirmyndir Naglans, voru spurðar að því  hvað hefðu verið þeirra helstu mistök þegar þær byrjuðu að æfa og borða hollt. 

  • Giska á magn af mat í stað þess að vigta eða telja. 15 g af hnetusmjöri er miklu minna en fólk heldur.
  • Ég ályktaði bara að ég væri ekki að borða of mikið. Af hverju gallabuxurnar urðu alltaf þrengri og þrengri var mér mikil ráðgáta he he…
  • Að átta mig á hollusta þarf að gerast alla daga, ekki bara mánudag til föstudags. Einn dagur í rugl og sukk um helgi getur hindrað árangurinn og þurrkað út góða viku.
  • Óraunhæfar væntingar. Ég hélt að ég myndi fá sjóðheitan skrokk eftir nokkrar lyftingaræfingar og nokkrar vikur af hollustu. Nú veit ég betur og hef lært að  þolinmæði er lykillinn í fitutapi.
  • Að búast við árangri “med det samme”. Ég lagðist í þunglyndi ef ég missti ekki 5kg strax í viku 1.
  • Að skilja ekki muninn á ÞYNGDARtapi og FITUtapi. Ég ályktaði að  fyrst vigtin hreyfðist ekki þá væri ekkert að gerast.
  • Þráhyggja yfir vigtinni. Ég vigtaði mig á hverjum degi og varð þunglynd ef hún fór ekki niður á við. Nú vigta ég mig einu sinni í viku. Mælingar og hvernig fötin passa skiptir mig svo miklu meira máli. 
  • Að borða ekki nóg af góðu fitunni. Ég setti samasem merki milli fitu í mat og fitu í líkama. Nú veit ég hvað hún er mikilvæg fyrir fitutap, vöðvauppbyggingu og heilbrigði.
  • Ég vanmat skaðann af því að fara yfirum í svindli og hunsa 90% regluna.
  • Að detta af beinu brautinni þýddi “fuck-it, þetta er ónýtt hvort eð er” og gúffaði í mig það sem eftir var dagsins.
  • Ég hélt að próteinbar væri hollari en venjulegur matur því þau voru hönnuð með fitness fólk í huga.
  • Skemmdi brennslukerfið  með alltof miklu af brennsluæfingum.
  • Ég hunsaði öll lögmál um að maður stækki í hvíld og gerði alltaf meira og meira af æfingum, bæði lyftingum og brennslu, því ég hélt að meira væri betra.
  • Ég trúði mýtunum að 1200 kal væri leiðin til fitutaps, og skildi ekki af hverju ekkert gerðist (líkaminn í bullandi vörn).  Minnkaði og minnkaði matinn og var komin niður í 800 kal á dag. Það var skelfilegt tímabil.
  • Að borða of lítið alltof lengi. Það tók mig langan tíma að laga þann skaða sem ég gerði líkamanum með alltof fáum hitaeiningum.
  • Ég var löt og nennti ekki að undirbúa máltíðirnar fyrir næsta dag kvöldið áður. Það var ávísun á að grípa eitthvað óhollt sem hendi var næst af því ég hafði ekki tíma á morgnana.
  • Að drekka ekki nóg vatn. Það leiddi oft til ofáts þar sem líkaminn mistúlkar oft þorsta fyrir hungur.