Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   

Fyrsta hugmyndin um Vöðvafíkn kviknaði á heimasíðunni minnsirkus.is sumarið 2006, þar sem hægt var að stofna samfélag utan um áhugamál sín og hét samfélagið Fitness, Vaxtarrækt, Kraftlyftingar og Aflraunir.

Ég hafði fylgst með fitness og vaxtarræktarkeppnunum sem fóru fram á Akureyri frá 2003 og hafði sjálf keppti í tvisvar sinnum í unglingaflokki. Það sem mér fannst erfiðast við fitnessið var að hvergi var hægt að finna upplýsingar á íslensku um hvernig ætti að bera sig að fyrir keppnir, hvort sem það tengdist pósum, brúnkukremi, æfingum, mataræði eða öðrum undirbúningi. Þar sem ég hafði nú einhverja reynslu ákvað ég að deila henni með þeim sem höfðu áhuga á að keppa .

Sumarið 2006 fór ég að fylgjast með úrslitum aflraunakeppna og mætti ég á mitt fyrsta aflraunamót (semsagt mætti án þess að ramba óvart inn á eitt) til að taka myndir af keppendum svo ég myndi nú vita hvernig þeir litu út. 

Um haustið fóru kraftlyftingarmótin á fullt. Mér fannst alveg óþolandi að lesa langan lista af úrslitum og hafa ekki hugmynd um hver Jón Jónsson var, hafði hann keppt áður ? Var þetta nýgræðingur eða alvanur kraftlyftingarmaður ?

Það var aðallega sú litla athygli sem þessi sport fá sem fékk mig til að  reyna að fjalla um þau eins mikið og ég gat.

 

Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Mót framundan

Ef nafn keppni er gul þá er hægt að smella á nafnið og fá nánari upplýsingar

1.-2.febrúar
Arnold Amateur 2012

Columbus, Ohio
18 íslenskar stelpur keppa

2.-3.febrúar
Arnold Strongman Classic 2012

Hafþór Júlíus keppir