Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 27. júlí 2009 16:05

Fjögur Íslandsmet slegin á Kópavogsmótinu í Bekkpressu

Í þyngdarflokki 56 kg bætti Eggert Thorarensen sitt eigið Íslandsmet sem jafnframt er met í drengjaflokki- og pressaði 55 kg.

Daníel Geir Einarsson setti drengjamet í þyngdarflokki 110 kg, en það telst líka met í unglingaflokki – og pressaði 140 kg.

Rósa Soffía Haraldsdóttir setti Íslandsmet í þyngdarflokki - 60kg og pressaði 40kg.

María Guðsteinsdóttir bætti sitt eigið met í þyngdarflokki - 67,5 kg – og pressaði 100 kg.

Stigahæstir keppendur í karla- og kvennaflokkum urðu þau Guðmundur S. Erlingsson og María E. Guðsteinsdóttir. Þau lyftu einnig mestum þyngdum í hvorum kynjaflokki en Guðmundur bekkpressaði sig inn á forstig alþjóðlegrar getu með 212,5 kg – og María pressaði á heimsmælikvarða 100 kg í bekkpressu.

Þá hlaut Daníel Geir Einarsson frá Selfossi nafnbótina „efnilegasti keppandinn" og er ljóst að í þessum 17 ára kraftlyftingadreng er fundið mikið íþróttamannsefni enda setti Daníel drengjamet í bekkpressu á Kópavogsmótinu í bekkpressu.

NÁNAR UM ÚRSLIT KÓPAVOGSMÓTS Í BEKKPRESSU hér

Mótið var sett af hr. Ármann Kr. Ólafssyni, bæjarfulltrúi og bæjaráðsmanni f.h. bæjarstjóra og f.h. bæjarstjórnar Kópavogs og hélt hann góða og skemmtilega ræðu og opnaði fyrsta Kópavogsmót í bekkpressu með miklum glæsibrag. Það er ánægulegt að segja frá því að það var húsfyllir og gott betur á.

Mótið var haldið í Íþróttahúsi Breiðabliks,
Dalsmára.

Úrslit voru þessi:

Kvennaflokkar:

Flokkur 60 kg

Nafn Félag Úrslit Wilksst.
Rósa S. Haraldsdóttir Breiðablik 40 kg 44,944

Flokkur 67,5 kg

Nafn Félag Úrslit Wilksst.
María Guðsteinsdóttir Ármann 100 kg 102,17
Linda Hrönn Guðnadóttir Breiðablik 52,5 kg 54,52125

Flokkur 75 kg

Nafn Félag Úrslit Wilksst.
Edda Ósk Tómasdóttir Breiðablik 52,5 kg 52,332
Anna Jónsdóttir Ármann 52,5 kg 51,6285

Flokkur 90 kg

Nafn Félag Úrslit Wilksst.
Gry Ek Breiðablik 85 kg 74,086

 

Karlaflokkar:

Flokkur 56,0 kg

Nafn Félag Úrslit Wilksst.
Eggert Thorarensen Breiðablik 55 kg 54,4115

Flokkur 67,5 kg

Nafn Félag Úrslit Wilksst.
Þröstur Thorarensen Breiðablik 60,0 kg 49,272

Flokkur 75 kg

Nafn Félag Úrslit Wilksst.
Sveinn Snorri Magnússon Breiðablik 50,0 kg 37,47

Flokkur 82,5 kg

Nafn Félag Úrslit Wilksst.
Ásmundur Símonarson Ármann 120,0 kg 82,188
Hreinn Líndal Hreinsson Breiðablik 100,0 kg 68,27

Flokkur 100 kg

Nafn Félag Úrslit Wilksst.
Jóhann H. Gunnarsson Ármann 135,0 kg 82,4985

Flokkur 110 kg

Nafn Félag Úrslit Wilksst.
Daníel Geir Einarsson UMFS 140 kg 83,174

Flokkur +125,0 kg

Nafn Félag Úrslit Wilksst.
Guðmundur Stefán Erlingsson UMFN Massi 212,5 kg 119,2975

Verðlaun fyrir besta stigaárangur karla fékk Guðmundur Stefán Erlingsson og í kvennaflokki var María Guðsteinsdóttir stigahæst. Daníel Geir Einarsson var valinn efnilegasti keppanda mótsins.

Fjögur íslensk bekkpressumótsmet voru sett:
Í flokki 56 kg bætti Eggert Thorarensen sitt eigið íslandsmet sem jafnframt er met í drengjaflokki.
Daníel Geir Einarsson setti drengjamet í flokki 110 kg, en það telst líka met í unglingaflokki.
Rósa S. Haraldsdóttir setti íslandsmet í flokki - 60 kg
María Guðsteinsdóttir bætti sitt eigið met í flokki - 67,5 kg.

Dómarar voru:
Hörður Magnússon, Helgi Hauksson, Guðjón Hafliðason og Halldór Eyþórsson

Stangarmenn voru:
Auðunn Jónsson, Vigfús Kröyer og Grétar Hrafnson

Mótsþulur: Halldór Eiríkur S. Jónhildarson
Keppnisritari var Elín María Guðbjartsdóttir
Tímavörður : Birgir Viðarson og Halldór Eyþórsson