Viðtöl
Mánudagur, 08. september 2008 00:00

Þriðji dagur Stefán Sölva á WSM 2008

 

Stefán Sölvi á World Strongest Man 2008
Ljósm.Jason Means

Þriðji dagur byrjaði með deadlift. Ég náði 5repsum sama og Jarek Dymek en hann var fljótari og varð því ofar. Jason Bergmann náði 6 lyftum og Derek Poundstone og Mark Felix voru einu af þeim 18keppendum sem reyndu sig við deddið sem náðu öllum 7 lyftunum. Felix var með betri tíma þannig að hann sigraði greinina eins og við mátti búast. Ég endaði í 5.sæti og var ekki sáttur. Fórum svo í viking press og þurfti ég að fara fyrstur. Ég náði 10repsum, Mark Felix kreisti fram 11, Poundstone tók 12 og hætti. Jarek Dymek og Jason Bergmann voru jafnir í fyrsta sæti með 13 lyftur en Jarek er þekktur fyrir að vera með þeim betri í þessari grein. Ég var aftur í 5.sæti og á því enga möguleika að komast í úrslit.

En það verður barist fyrir eitthverjum heiðri á morgun þegar atlas steinatökin fara fram hahaha 

Kveðja frá USA
Stefán Sölvi

Staðan í riðlinum:

1. Derek Poundstone - 25 stig
2. Mark Felix - 23 stig
3. Jason Bergmann - 21,5 stig
4. Jarek Dymek - 16,5 stig
5. Stefán Sölvi - 14 stig
6. Igor Werner - 5 stig

 
Sunnudagur, 07. september 2008 00:00

Annar dagur Stefán Sölva á WSM 2008

 

Varð í þriðja sæti í fingal fingers. Munaði sorglega litlu að ég næði fimmta og síðasta fingrinum sem var þyngri í ár en vanalega. Hefði náð öðru sæti hugsanlega með því en svona er þetta. Poundstone og Jason Bergmann voru einu sem kláruðu fingurna í okkar riðli og var Poundstone með betri tíma. Náði svo þriðja sæti í ótrúlega erfiðum trukkadrætti með 1:01 mínútu. Var gjörsamlega að drepast í 20 mínútur á eftir sem er svaka gaman  Mark Felix vann þá grein með Derek Poundstone í öðru sæti. Á morgun er dedd og viking press. Í deddinu þarf að taka 7 reps þar sem hvert reps mun þyngjast. Fyrsta lyfta er 285kg og sú síðasta 365kg. Viking press verður 140kg á reps.

Kveðja frá USA
Stefán Sölvi

 

Staðan eftir 3 greinar af 6:

1. Derek Poundstone - 16 stig
2. Mark Felix - 14 stig
3. Jason Bergmann - 12 stig
4. Stefán Sölvi - 10 stig
5. Jarek Dymek - 8 stig
6. Igor Werner - 3 stig


Fingurinn

 
Laugardagur, 06. september 2008 00:00

Fyrsti Dagur Stefáns Sölva á WSM 2008

Dagur eitt byrjaði illa hjá mér. Fyrsta greinin var hleðslugrein. Tvær 105kg tunnur og tveir 125kg sekkir í sandi 10metra. Þegar ég var á annarri tunnu þá fór þumallinn á vinstri hendi úr lið í augnablik og hrökk svo aftur til baka sem betur fer. Tók svo lélegt tak á sekknum og náði ekki að klára upp á pall. Endaði í 5.sæti af 6. í þessari grein. Læknirinn er búinn að tjékka á puttanum og þetta er allt í góðu. Á morgun er fingal fingers og trukkadráttur og ég vona að ég nái að bæta upp nokkur stig sem ég tapaði. Ég er bjartsýnn á þetta og er í góðum anda. Mark Felix vann greinina í mínum riðli og var eini sem kláraði alla hlutina. Annar var Derek Poundstone, þriðji Jason Bergmann og Jarek Dymek í fjórða. Svo kom ég og Igor Werner.

Kveðja frá USA
Stefán Sölvi

 
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008 10:23

Hvað er að frétta ?

Guðrún Hólmfríður Ólafsdóttir


2.sæti Unglingafl Íslandsmóti Fitness 04
2.sæti Unglingafl Íslandsmóti Fitness 05
1.sæti Unglingafl Íslandsmóti Fitness 06
2.sæti í -164cm Bikarmót Fitness 2006
2.sæti Unglingafl Íslandsmóti Fitness 07
3.sæti +163cm fl Fitness Íslandsmóti 08
Hvert ertu að fara keppa og hvenær ?
Ég er að fara að keppa í Noregi á Oslo Grand Prix núna um helgina. Vaxtarræktin verður haldin laugardaginn 12.apríl og svo keppum við í fitnessinu sunnudaginn 13.apríl

Hvað verðurðu lengi ?
Fer út föstudagsmorgun og kem aftur heim á mánudaginn

Fer einhver með þér út ?
Ég tek kærastann minn með mér sem aðstoðarmann. Annars eru það Rósa, Kristín, Sigurður J.K og Maggi Bess.


Nú ertu að fara út að keppa í fyrsta skipti hvernig er fílingurinn ?
Mér finnst það rosa spennandi, gaman að fá að prufa þetta og verður alveg pottþétt frábær reynsla. Ég er samt líka pínu stressuð, þar sem ég hef aldrei farið á svona mót og þekki ekki inn á þetta, en sem betur fer eru fullt af reynsluboltum með mér í ferðinni svo þetta á nú ábyggilega allt eftir að fara vel.


Nú kepptirðu um páskana á Íslandsmóti IFBB hélstu bara áfram að kötta eftir það mót eða vissirðu ekki að þú værir að fara út ?
Ég tók mér fjóra daga í páskaegg en hélt svo áfram. Var búin að gera ráð fyrir að ég færi eitthvað út, vissi bara ekki hvert eða hvenær, svo um leið og það var ákveðið að ég færi til Osló þá var allt sett á fullt aftur.


Hvernig heldurðu að þér muni ganga ?
Ég er ekki að gera mér neinar stórar væntingar með þetta mót, er búin að vera að laumast til að kíkja á myndir af öðrum keppendum og þær eru allar rosalega flottar. Stefnan mín er bara að gera mitt allra besta svo ég geti verið sátt við mína framistöðu, og svo mæti ég bara aftur að ári liðnu enn betri og með enn hærri markmið.


Í hvaða flokki verður þú ?
Ég er skráð í -163 cm flokkinn, mældist 163,1 cm á Íslandsmeistaramótinu og var því í plúsflokknum þar, en þar sem mælingin fer núna fram að kvöldi til þá lendi ég líklega undir.

 
Þriðjudagur, 26. ágúst 2008 00:00

Stefáni Sölva boðið á WSM 2008

Hvað er að frétta, Stefán Sölvi ?

Stefán Sölvi
Ljósm. subolica.info
Mér var boðið að keppa á WSM sem fer fram í Charleston, West Virginia í USA í byrjun september  Riðlarnir fara fram 6.-9.september og úrslitin verða 12.-14.sept. Ég var settur í riðil 1 með Derek Poundstone (USA), Jarek Dymek (Pólland), Mark Felix (England), Jason Bergmann (USA) og Igor Werner (Þýskaland). Það er keppt í 5greinum í hverjum riðli og eru riðlarnir 5 með 6 keppendum í hverjum. Ég veit ekki allar greinar sem riðill 1 fær en það verður allavega réttstöðulyfta, fingal fingers og atlas steinar.

Greinar sem skráðar eru á riðlana eru:
Hleðsla
Kútakast
Fingal Fingers
Trukkadráttur
Hnébeygjugrein
Réttstöðulyftugrein
Víkingapressa
Pressa yfir höfuð
Atlas steinar

 

7 greinar eru í úrslitinum og þær eru:

Power stairs
Fingal fingers
Bílaganga
Réttstöðulyfta með bíl
Pressa yfir höfuð
Flugvéladráttur
Atlas steinar 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL