Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 04. febrúar 2010 14:08

Á bætingarbraut í Beisinu, aðal pleisinu!

Hvað er að frétta Stefán Sölvi ? 

 

Nú er maður að sjálfsögðu að æfa eins og berserkur, bítandi í skjaldarrendur fyrir sumarið. Við erum á bætingabrautinni saman í Beisinu! Aðal pleisinu! Ég, Boris, Heisi og svo er Úlfur Orri bróðir minn byrjaður að mæta vel líka.

Ég stefni helstu mótin hér heima í sumar, Vestfjarðavíkinginn, Sterkasta mann Íslands og vonandi Austfjarðatröllið. Ég er líka kominn með nokkur mót erlendis sem ég ætla mér stóra hluti á :)

Smellið á Nánar til að lesa allt viðtalið

Fyrsta mótið er Giants live í Jóhannesarborg í Suður-Afríku 10. og 11. apríl. Þetta er úrtökumót fyrir World´s Strongest Man þannig að það er eins gott að standa sig vel :)
 
Þeir keppendur sem ég hef heyrt að muni mæta eru:
Brian Shaw - Bandaríkin
Terry Hollands - England
Richard Skog - Noregur
Mark Felix - England
Konstantin Ilyn - Úkraína
Ettiene Smit - Suður-Afríka
 
Ég læt Vöðvafíkn vita endanlegan keppendalista þegar nær dregur að sjálfsögðu. Það voru einhverjar sögusagnir um að Mariusz myndi mæta til leiks en ég er ekki viss.

 

Keppnisgreinar verða: ( Þær geta samt alltaf breyst )
Bændaganga
Kútakast
Atlas steinar
Réttstöðulyfta
Mylluganga ( Conan´s Wheel )
Pressuþraut
Hleðsla
Uxaganga
Svo hugsanlega 25kg lóðakast
yfir rá og apollon öxull.