Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 01. júní 2010 10:11

Hvernig verður sumarið hjá Stefáni Sölva ?

Kappinn er í Londin núna með Terry Hollands og Kevin Nee. Við vorum á World's Strongest Man Experience um helgina a The Seni Expo. Þessi keppni var nú samt frekar sýning en mót, en það voru samt ágætis þyngdir. Farmers Walk var 160kg, Dumbell 93kg og 330kg dedd á pres, 130kg flokkur á reps og atlas steinar. Vorum á þessari sýningu bæði laugardag og sunnudag þannig að maður er svolítið stífur og þreyttur í dag (mánudag).

 
Ljósm. Subotica.info

Næstu helgi er Strongman og Hálandamót hér í London, veit ekki ennþá hvaða greinar verða. Svo keppi ég á Sterkasti Maður Íslands 16. og 17.júní. Eftir það fer ég til Skotlands á Hálandaleika 20.júní og svo Viking Power Challange í Noregi þann 26.júní þannig að það er nóg að gera í júní. Æfingarnar hafa gengið mjög vel þannig að þetta verður skemmtilegt sumar :)