Maggi Bess
Þegar ég horfði á mótið þá sagði ég við sjálfan mig þarna ætla ég einhverntíma að vera ...
 Júlíus Bess & Maggi Bess árið 1992 Ljósm. Maggi Bess - Einkasafn
|
Nýlega opnaði heimasíðan MaggiBess.is þar sen hægt er að finna ýmsar upplýsingar um Magga og finna ótal margar myndir frá gömlum mótum og ferli Magga. Í tilefni af opnunn síðunnar og þess að Maggi er að fara keppa í fyrsta skipti á Arnold Classic þá ætla ég að birt hér sögu Magga sem birtist á heimasíðunni hans: MaggiBess.is
Pabbi var fyrsta fyrirmyndin
Það má með sanni segja að lífið mitt hefur einkennst af lyftingum og vaxtarrækt. Pabbi, Júlli Bess var einn af þeim fyrstu á Íslandi sem byrjaði að lyfta lóðum, en í þá tíma höfðu menn ekki mjög góða aðstöðu og notuðust við allt sem hægt var að rífa í. Má þar nefna járnbrautateina, járnbrautahjól og ýmsa hluti og urðu sterkir af.
Eftir nokkurra ára æfingar byrjaði pabbi að keppa í kraftlyftingum og varð oft Íslandsmeistari. Árið 1982 keppti hann á fyrsta Íslandsmótinu í vaxtarrækt sem haldið var á Broadway við mikinn fögnuð áhorfenda, en á þeim tíma var vaxtarrækt orðin mjög vinsæl úti í hinum stóra heimi og Arnold Schwarzenegger orðinn 7 sinnum Mr. Olympia. Þegar ég horfði á mótið þá sagði ég við sjálfan mig þarna ætla ég einhverntíma að vera og hef svo sannarlega staðið við það.
Smellið á Nánar til að lesa allt viðtalið
Maggi Bess, Reynir Bess & Júlíus Bess árið 1988
Ljósm. Maggi Bess - Einkasafn
Byrjaði snemma
Mín fyrsta reynsla af lóðum var þegar við bræðurnir, ég og tvíburabróðir minn Reynir reyndum okkur á bekknum en það endaði með því að ég braut 4 tennur þegar ég fékk stöngina í andlitið en þá var ég aðeins 6 ára gamall og þá var ekki aftur snúið, ótrúlegt en satt. Þrátt fyrir mjög ungan aldur varð ég heillaður af þessu sporti og mætti með pabba tvisvar til þrisvar í viku til að fylgjast með köllunum taka á því. Einnig fórum við bræðurnir oft með pabba niður í Jakaból þar sem góðir menn HELtóku á því. Má þar nefna menn eins og Jón Pál Sigmarsson, Skúla Óskarsson og marga fleiri víkinga. Ég byrjaði svo af alvöru að lyfta lóðum 14 ára gamall með pabba og æfði markvisst og vel.
Maggi Bess árið 1989
Ljósm. Maggi Bess - Einkasafn
Endalaust keppnisskap
Ég keppti fyrst þegar ég var á sautjánda ári á Íslandsmóti í kraftlyftingum og varð Íslandsmeistari unglinga.
Ljósm. Maggi Bess - Einkasafn
Þegar ég var 19 ára gamall keppti ég á mínu fyrsta vaxtarræktarmóti en það var haldið árið 1989. Þá varð ég Íslandsmeistari í -80 kg flokki unglinga. Árið 1992 keppti ég svo í fyrsta skipti í fullorðinsflokki, þá 22 ára gamall og varð heildarsigurvegari mótsins, það fannst mér sætur sigur.

Ljósm. Maggi Bess - Einkasafn
Síðan þá hef ég keppt á nánast hverju ári í 20 ár, í kraftlyftingum, aflraunum og vaxtarrækt til að byrja með og síðar eingöngu í vaxtarrækt. Titlar mínar í þessum greinum skipta tugum og má þar nefna að ég á 29 Íslandsmeistaratitla í vaxtarrækt, þar af 12 í opnum flokki, sem og fjölmarga í kraftlyftingum og nokkra í aflraunum.
Maggi Bess og aðrir hressir með Jóni Páli í Bláa Lóninu
Ljósm. Maggi Bess - Einkasafn
Hinn stóri heimur
Mitt fyrsta mót erlendis var Norðurlandamót í Finnlandi árið 2005 og þar endaði ég í 2. sæti sem var framar vonum að mér fannst. Síðan þá er ég búin að keppa á 12 alþjóðlegum mótum og náð að komast í úrslit á þeim öllum og gott betur en það því að í safnið eru komin þrenn gullverðlaun, þrenn silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun. Hápunktur ferilsins míns er þó án efa þegar ég varð Norðurlandameistari árið 2008.
Þrátt fyrir alla þessa titla er ég hvergi nærri hættur og stefni á að gera enn betur á komandi árum því fyrir mér er þetta lífstíll og það góður lífstíll.
Kveðja, Maggi Bess