Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 07. desember 2009 15:18

 Fitness er eins og pringles:
"Einu sinni smakkað þú getur ekki hætt"

Viðtal við Einhildi Ýr Gunnarsdóttur

Einhildur Ýr Gunnarsdóttir
Ljósm. Sunna Hlín

Keppandinn sem kom örugglega mest á óvart á Bikarmótinu í ár var Einhildur Ýr Gunnarsdóttir en hún hafði tvisvar áður keppt í Módel Fitness en ekki vakið neina sérstaklega athygli áður.

Í ár mætti hún í +164cm fitness flokk og náði þar 5.sæti eftir stífar æfingar undir leiðsögn Konna í World Class en hann þjálfaði einnig sigurvegara Módel Fitness og Unglingaflokks fitness kvenna.

Nú hefurðu keppt tvisvar áður en aldrei verið neitt nálægt því formi sem þú ert í nú. Hvað gerðirðu öðruvísi fyrir þetta mót ?

Ég er ótrúlega sátt með Bikarmótið og allt gekk upp í sögu í köttinu fyrir þetta mót. Annað má nú segja með undirbúning fyrir Bikarmót IFBB 2008 en þá fór allt í vitleysu og ég fór í ofþjálfun viku fyrir mót og vatnaðist mjög mikið. Á keppnisdag í fyrra leit ég mun verr út en vikunni áður og kveið fyrir því að fara á svið. Mér finnst mjög erfitt að skoða myndirnar frá því í fyrra vegna þess að ég veit hvernig ég leit út vikunni fyrir mót.

Í ár ákvað ég strax að ég vildi ekki gera sömu mistök í fyrra og vildi alls ekki fara á svið ef að ég væri ekki nógu góð. Ég byrjaði að kötta þegar ég var að æfa fyrir keppnina Sterkusta Kona Íslands og þá ætlaði ég að sjá til hvort að ég myndi ná að keppa á Bikarmótinu eða ekki. Strax eftir Sterkustu Konu Íslands ákvað ég að hafa samband við Konna, sem að er einkaþjálfari í Laugum. Ég vildi athuga hvort að hann væri til í að leiðbeina mér með æfingar og matarræði fram að móti. Þó að ég sé menntaður einkaþjálfari þá er alltaf gott að fá utanaðkomandi aðstoð með gagnrýnt auga. Í fyrra þá var ég að fá ráð frá nokkrum í einu og það olli mér miklu stressi og mæli ég með því að ráðleggja sig bara við eina manneskju.
 
Einhildur Ýr Gunnarsdóttir
Tekið á Íslandsmóti IFBB 2008
Ljósm. Einkasafn
 
Ég held að Konna hafi ekki litist beint vel á mig þegar að ég kom til hans 7 vikum fyrir mótið að biðja um prógram, vegna þess að ég fitnaði ansi mikið í sumar og þurfti á hardcore prógrammi að halda. Hann lét mig fá stíft æfingar-og matarprógram sem að ég fór eftir í einu og öllu með hjálp unnusta míns honum Gunnari sem að eldaði nánast alltaf ofan í mig og dreif mig með sér á æfingar. Vegna þess hve há ég var í fituprósentu mátti ég ekki hafa neina nammidaga sem að var erfitt fyrst en svo var það ekkert mál og ég held að það hafi hjálpað mér svakalega með skurð.

Ég æfði allt öðruvísi en ég æfði fyrir mótið í fyrra. Núna var ég að taka mikið af súpersettum og hlaupasprettum en í fyrra þá æfði ég hvern vöðvahóp fyrir sig og var ekki að súpersetta neitt. Ég tók líka meira af brennslu fyrir þetta mót en ég gerði í fyrra. Matarræðið var líka öðruvísi. Í fyrra þá var ég með nammidaga en var lægri í kolvetnum virka daga. Í ár þá var ég með aðeins hærra kolvetni í matarræðinu mínu en aftur á móti var ég ekki með neina nammidaga eða hærri kolvetnisdaga.

Einhildur Ýr Gunnarsdóttir
Bikarmót IFBB 2009
Jóhanna Klausen
Svo 3 vikum fyrir mótið mitt þá fór ég í þjálfun til Konna í svona “fitness hóp” þar sem að við vorum þrjár skvísur í þjálfun hjá honum. Það hjálpaði mér gífurlega mikið að kærastinn minn stóð við bakið á mér allan tímann og eldaði fyrir mig.

Ég tók 10 vikna kött í ár en 14 vikna kött í fyrra. Mér finnst styttra kött henta mér betur. Ég mæli samt ekki með því að byrja að kötta ef að þið eruð háar í fituprósentu ef að þið eruð að hugsa um að taka stutt kött. Ég var frekar þung í byrjun köttsins og missti yfir 15 kg á þessum 10 vikum sem að tók blóð, svita og tár og ætla ég mér aldrei aftur að taka stutt kött jafn þung og ég var.

Nú er Konni þekktur fyrir að vera "hardcore" í æfingarprógrömmum sem hann gefur út. Hvernig fannst þér að vera í þjálfun hjá honum ?

Mér fannst æðislegt að vera í þjálfun hjá honum. Minnir samt að ég hafi blótað honum í sand og ösku eftir að ég byrjaði á æfingarprógraminu hjá honum Þetta var rosalega erfitt fyrst til að byrja með og ældi ég nokkru sinnum á fyrstu æfingunum, þetta var líka allt öðruvísi en allt sem að ég hef gert áður.

Rétt fyrir mót æfðirðu með Sif Sveinsdóttur, sigurvegara Módel Fitness og Heiðrúnu Ingrid, sigurvegara Unglinga fitness hvernig var það ?
Það var frábært að fá að æfa með Sif og Heiðrúnu enda eru þær líka frábærar stelpur. Þær héldu mér alveg við efnið enda ekkert smá flottar! Þegar ég vissi að ég átti að fara að æfa með þeim þá varð ég enn harðari við sjálfan mig og tók extra vel á því í brennslunum mínum. Þær voru líka aðeins köttaðari en ég þegar við byrjuðum í hópnum og það var mjög gott fyrir mig að sjá það og það hvatti mig mjög svo áfram. Það er líka svo gaman að æfa með stelpum sem að eru með metnað og eru ekkert að væla.

Einhildur Ýr Gunnarsdóttir
Íslandsmót IFBB 2008
Ljósm. Einkasafn
Hvað finnst þér hafa skipt mestu máli í niðurskurðinum hjá þér ?
 
Stuðningur fjölskyldu minnar, vina og auðvitað kærastinn. Ég held að það sé ekki auðvelt að kötta þegar fólkið sem að þú umgengst mest skilur þig ekki, allar æfingarnar, skrítni maturinn, þyngdartapið og einstöku geðsveiflurnar;) Svo hjálpaði það líka að fá ráðleggingar frá Konna.

Einnig verð ég að taka það fram að stuðningsaðilarnir mínir hjálpuðu mér mjög mikið. Stuðningsaðilar mínir eru Reebok, World Class, Laugar Spa, Perform.is, Heilsa og fegurð og sólbaðstofan Smart. Ég þakka þeim kærlega fyrir allan stuðninginn!

Hvernig gekk annars niðurskurðurinn, lentirðu á einhverjum veggjum á leiðinni eða hugsaðiru einhvertíman út í að hætta við ?

Niðurskurðurinn gekk eins og í sögu. Ég hélt upphaflega að ég myndi ekki getað náð því að verða nógu góð til þess að fara á svið en svo var ekki. Síðustu tvær vikurnar voru erfiðastar og það kom stundum fyrir að ég hugsaði að allt þetta matarræði væri bara geðveiki og ég ætti bara að skella mér á pizzastað og fá mér eina lummu og hætta við en sem betur fer gerði ég það ekki. Ég sé engan veginn eftir því að hafa keppt, ég elska að fara upp á svið og sýna afrakstur erfiðisins. Ég elska að sjá bætinguna hjá mér og ég ætla klárlega að vera betri næst þegar ég kem. Fitnessið er eins og Pringles "einu sinni smakkað þú getur ekki hætt" !
 
Hvaða ráð geturðu gefið nýliðum sem langar að koma sterkum inn ?
 
Einhildur Ýr Gunnarsdóttir
Bikarmót IFBB 2009
Ljósm. Jóhanna Klausen

Gefðu þér tíma í niðurskurðinn og ekki svindla. Ef að þú ætlar að vera að svindla þá getur þú bara sleppt þessu. Gerðu þitt allra besta og taktu gagnrýni á jákvæðan hátt. Það er alltaf tími til þess að bæta sig. Mér finnst nauðsynlegt að allir keppendur geri sér grein fyrir því hvað gerist eftir mót og þeir séu tilbúnir að sjá hvernig líkaminn breytist aftur. Hægt er að lesa ótrúlega góð greinin hér um Eftirkeppnis þunglyndi.